Gennaro Ivan Gattuso, þjálfari Valencia á Spáni, mun þurfa að ferðast alla leið til Singapúr á morgun til að ræða við eiganda félagsins.
Gattuso var ráðinn til Valencia fyrr í sumar en félagið hefur tapað þremur af fyrstu fimm leikjum deildarinnar.
Liðið tapaði fyrir Rayo Vallecano í dag og þarf Gattuso nú að taka flug til Singapúr til að ræða við Peter Lim, eiganda Valencia, til að fara yfir stöðuna.
Sæti Gattuso er heitt og er möguleiki á því að hann verði látinn fara en eiginkona ítalska þjálfarans er ekki sátt við að hann þurfi að ferðast alla leið til Singapúr. Peter Lim er ekki hrifinn af því taka símtöl og vill helst hittast í eigin persónu.
„Eftir leikinn fæ ég þriggja daga frí til að vera með fjölskyldunni en ég þarf að ferðast til Singapúr og ræða við Peter Lim. Hann er ekki hrifinn af símum. Þetta er heiður fyrir mig, en eiginkona mína er ekki ánægð með þetta. Ég verð hins vegar að fara," sagði Gattuso.
Athugasemdir