Arnór Gauti Ragnarsson, leikmaður Hönefoss í fimmtu efstu deild í Noregi, skoraði tvö mörk er lið hans vann Lillehammer 3-0 í dag.
Mosfellingurinn skoraði þann 27. ágúst síðast en fyrir það hafði hann ekki skorað í rúma tvo mánuði.
Hann gerði tvö mörk fyrir Hönefoss í dag. Hann gerði fyrra mark sitt á 21. mínútu og annað þegar um það bil hálftími var eftir. Arnór er því með þrjú mörk í síðustu þremur leikjum liðsins.
Liðið er í 8. sæti deildarinnar með 28 stig.
Hólmbert Aron Friðjónsson kom inná sem varamaður á 75. mínútu í 2-1 sigri Lilleström á Strömsgodset. Ari Leifsson kom ekki við sögu hjá Strömsgodset vegna meiðsla. Lilleström er í 2. sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 44 stig en Strömgodset í 8. sæti með 29 stig.
Selma Sól Magnúsdóttir spilaði þá allan leikinn í 3-1 sigri Rosenborg á Stabæk. Þetta var fyrsti leikur Rosenborg í meistarariðlinum í Noregi en liðið er með sjö stig í efsta sæti riðilsins. Rosenborg tók með sér fjögur stig úr deildinni.
Athugasemdir