Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 10. október 2018 17:21
Elvar Geir Magnússon
Guingamp
Matuidi spilar ekki gegn Íslandi
Icelandair
Matuidi spilar ekki gegn Íslandi.
Matuidi spilar ekki gegn Íslandi.
Mynd: Getty Images
Nú var að klárast æfing franska landsliðsins í Guingamp en heimsmeistararnir eru að búa sig undir vináttulandsleik gegn Íslandi sem fram fer annað kvöld, 19 að íslenskum tíma.

Blaise Matuidi, miðjumaður Juventus, æfði ekki með liðinu en nú hefur verið staðfest að hann mun ekki spila gegn Íslandi.

Matuidi skokkaði með sjúkraþjálfara meðan á æfingunni stóð.

Engin áhætta er tekin með Matuidi og vonast til þess að hann geti spilað gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni á þriðjudag.

Líklegt byrjunarlið Frakklands miðað við æfinguna: Lloris - Pavard, Varane, Kimpembe, Digne - Nzonzi, Pogba - Thauvin, Griezmann, Dembele - Mbappe.
Athugasemdir
banner
banner
banner