Það var mikið um dýrðir á Stade de Roudourou í Guingamp í dag þegar franska landsliðið bauð til opinnar æfingar. Þrátt fyrir að aðeins búi um 8.000 manns í bænum mættu tæplega 19.000 áhorfendur og fylltu völlinn á meðan æfingunni stóð.
Franska landsliðið sýndi listir sínar við góðar undirtektir landsbyggðarinnar hér í Guingamp héraði en klappað var fyrir hverju vel heppnaða skotinu á fætur öðru.
Franska landsliðið sýndi listir sínar við góðar undirtektir landsbyggðarinnar hér í Guingamp héraði en klappað var fyrir hverju vel heppnaða skotinu á fætur öðru.
Hér fyrir neðan má sjá myndaveislu frá æfingunni en henni lauk með því að liðið gekk sigurhring um völlinn með sjálfan HM bikarinn. Það var fyrirliði Frakka, Hugo Lloris, sem fékk þann heiður að halda á bikarnum.
Athugasemdir