Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. október 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Dwight McNeil sparkað frá United út af föstum leikatriðum
Dwight McNeil.
Dwight McNeil.
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn ungi Dwight McNeil skaust af krafti inn í byrjunarlið Burnley á síðasta tímabili.

McNeil var í yngri liðum Manchester United á sínum tíma en þegar hann var 14 ára fékk hann ekki áframhaldandi samning hjá félaginu.

Spyrnur McNeil hafa hjálpað Burnley í föstum leikatriðum en á yngri árum hjá United þóttu spyrnurnar ekki nægilega góðar.

„Það er fyndið en ein af ástæðum þess að ég var látinn fara var af því að spyrnur mínar í föstum leikatriðum þóttu ekki nægilega góðar," sagði McNeil.

„Þetta voru frekar pirrandi tímar fyrir mig. Þetta var uppeldisfélag mitt og félag drauma minna. Ég er ennþá stuðningsmaður United í dag þrátt fyrir það sem gerðist."
Athugasemdir
banner
banner
banner