Victor Moses er á leið til Rússlands þar sem hann mun ganga í raðir Spartak Moskvu.
Félagaskiptaglugginn er enn opinn í Rússlandi og Moses er á leið til Spartak á láni frá Chelsea.
Moses, sem er 29 ára gamall, hefur verið á mála hjá Chelsea frá 2012 en hann er ekki í plönum Frank Lampard. Hann var á láni hjá Inter á síðustu leiktíð en Inter kaus að taka hann ekki aftur.
Moses getur bæði leikið sem kantmaður og hægri bakvörður. Hann á að baki 38 A-landsleiki fyrir Nígeríu.
Spartak Moskva er í öðru sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 21 stig eftir tíu leiki.
Victor Moses is set to leave Chelsea. He’s joining Spartak Moscow on loan - transfer window still open in Russia and Victor wants to play after Inter turned down the option of bringing him back. 🔵 @DiMarzio #Spartak #CFC #Chelsea
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 9, 2020
Athugasemdir