Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 10. október 2021 07:30
Victor Pálsson
Koeman sagður vilja Van de Beek
Mynd: Getty Images
Donny van de Beek, leikmaður Manchester United, er samkvæmt spænska miðlinum Sport á óskalista Barcelona.

Van de Beek hefur alls ekki náð að festa sig í sessi í Manchester eftir að hafa komið frá Ajax fyrir um tveimur árum.

Sport fjallar um samband Van de Beek við Ronald Koeman en hann er þjálfari Barcelona en er þó ansi heitur í sínu sæti eftir slæmt gengi á tímabilinu.

Van de Beek er orðinn 24 ára gamall og hefur aðeins spilað 39 leiki fyrir Man Utd síðan hann kom frá heimalandinu.

Hollendingurinn er sjálfur alls ekki ánægður í herbúðum Man Utd og gæti reynt að komast burt er glugginn í janúar opnar.

Barcelona hefur byrjað tímabilið virkilega illa og gæti reynt að styrkja sig á nýju ári ef fjármál félagsins leyfa þá stefnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner