Það var algjör frídagur hjá íslenska landsliðinu í Katar í dag.
Einhverjir nýttu daginn í að skella sér í golf og sumir fóru út í eyðimörkina þar sem hægt var að skella sér á úlfaldabak og leika sér á fjórhjólum eða öðrum farartækjum.
Einhverjir nýttu daginn í að skella sér í golf og sumir fóru út í eyðimörkina þar sem hægt var að skella sér á úlfaldabak og leika sér á fjórhjólum eða öðrum farartækjum.
Þá voru menn duglegir að sleikja sólina við sundlaugarbakkann á hótelinu.
Strákarnir okkar hafa fengið að njóta þess að vinna riðil sinn í undankeppni HM með því að hafa áhyggjulaust landsliðshlé þar sem hægt er að safna kröftum og stilla saman strengi í rólegheitum.
Á þriðjudaginn verður leikinn vináttuleikur gegn heimamönnum í Katar.
Sjá einnig:
Heimir: Hægt að hrista hópinn saman á annan hátt en á fótboltavellinum
Athugasemdir