Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. nóvember 2018 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
AC Milan missir Musacchio í tvo mánuði
Mynd: Getty Images
Milan er búið að staðfesta að argentínski miðvörðurinn Mateo Musacchio verður frá í tvo mánuði eftir að hafa lent illa í 1-1 jafntefli gegn Real Betis í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.

Musacchio virtist missa meðvitund í smá tíma eftir fallið en meiðslin eru á liðbandi á hægra hné.

Varnarmaðurinn hefur verið einn af betri mönnum Milan á tímabilinu og er fastamaður í byrjunarliðinu. Höfuðmeiðsli hans voru einnig rannsökuð en í ljós kom að hann fékk ekki heilahristing.

Milan hefur verið á góðu skriði í ítölsku deildinni að undanförnu og er þar í fjórða sæti, fjórum stigum eftir Inter og Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner