Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 10. nóvember 2018 17:16
Ívan Guðjón Baldursson
Augsburg á Twitter: Markmið!!!!!!!
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason gerði eina mark Augsburg í 2-1 tapi gegn Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Augsburg lenti undir en það tók Alfreð aðeins fimm mínútur að jafna fyrir sína menn.

Fagnaðarlætin voru ekki lengi að brjótast út meðal stuðningsmanna á Twitter og tísti opinber aðgangur FC Augsburg til að fagna markinu.

Hver sem stjórnar aðgangnum er ekki vel að sér í íslensku, heldur hefur hann treyst á forrit til að þýða enska orðið 'goal' yfir á íslensku. Niðurstöðuna er hægt að sjá hér fyrir neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner