lau 10. nóvember 2018 11:43
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Cardiff og Brighton: Aron byrjar á endurnýjaðri miðju
Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson er á sínum stað á miðjunni hjá Cardiff City sem fær Brighton í heimsókn í fyrsta leik helgarinnar í enska boltanum.

Heimamenn í Cardiff eru búnir að tapa tveimur í röð og verma næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar en gengi Brighton hefur verið talsvert betra og er félagið með níu stigum meira en Cardiff eftir ellefu umferðir.

Cardiff gerir þrjár breytingar á liðinu sem tapaði fyrir Leicester í síðustu umferð. Greg Cunningham tekur sér stöðu vinstri bakvarðar í stað Joe Bennett og koma tveir nýir inn á miðjuna við hlið Arons.

Það eru Kadeem Harris og Joe Ralls sem leysa Harry Arter og Bobby Reid af hólmi. Arter er meiddur en Reid og Bennett fara á bekkinn.

Chris Hughton gerir tvær breytingar á Brighton eftir 3-1 tap gegn Everton og koma þær báðar á hægri vængnum. Martin Montoya kemur inn í stað Bruno Saltor í hægri bakverði og þá fær Anthony Knockaert að byrja á hægri kanti í stað Alireza Jahanbakhsh.

Jahanbakhsh er frá vegna meiðsla, rétt eins og liðsfélagar hans Pascal Gross og Davy Propper.

Cardiff: Etheridge, Manga, Morrison, Bamba, Cunningham, Gunnarsson, Ralls, Harris, Murphy, Camarasa, Paterson
Varamenn: Smithies, Peltier, Bennett, Ward, Decordova-Reid, Damour, Hoilett.

Brighton: Ryan, Montoya, Duffy, Dunk, Bong, Knockaert, Stephens, Kayal, Izquierdo, March, Murray
Varamenn: Steele, Balogun, Bernardo, Bruno, Bissouma, Andone, Gyokeres.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner