Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 10. nóvember 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola svarar Dani Alves: Myndi alltaf velja kynlíf frekar
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, fékk athyglisverða spurningu á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Manchester United á morgun.

Hann var spurður út í ummæli sem Dani Alves, bakvörður Paris Saint-Germain, lét falla á dögunum.

Alves lék undir stjórn Guardiola hjá Barcelona. Hann segir að það sé betra að vera leikmaður hjá Guardiola en að stunda kynlíf.

Guardiola var spurður út í þessi ummæli á blaðamannafundi en svar þess spænska var:

„Ég myndi alltaf velja kynlíf frekar."

Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Guardiola fékk spurninguna. Hann hélt áfram og sagði að sumir leikmenn elska að spila undir hans stjórn og aðrir ekki. Dani Alves er einn af þeim sem elska Guardiola. Zlatan Ibrahimovic er einn af þeim sem gerir það ekki.

Lærisveinar Guardiola í City mæta Manchester United í baráttunni um Manchester á morgun.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner