Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 10. nóvember 2020 16:05
Magnús Már Einarsson
Lykilmenn Tindastóls framlengja - Hvað skorar Murielle mörg í Pepsi Max?
Murielle Tiernan
Murielle Tiernan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Murielle Tiernan, Jackie Altschuld og Amber Michel hafa allar gert áframhaldandi samninga við Tindastól og spila með liðinu í Pepsi Max-deildinni næsta sumar en það er Feykir sem greinir frá þessu.

Tindastóll vann Pepsi Max-deildina í sumar en þessir bandarísku leikmenn voru allar í mikilvægu hlutverki þar.

„Það er gríðarleg ánægja hjá félaginu með að hafa tryggt sér undirskriftir þeirra Mur, Jackie og Amber. Ég er mjög ánægður með að við í stjórn náðum að klára samninga við þær áður en þær fóru í smá frí. Þessar þrjár eru ekki aðeins partur af liðinu heldur líka partur af Tindastóls fjölskyldunni og kom aldrei neitt annað til greina hjá þeim en að skrifa undir og taka þátt í ævintýrinu sem bíður liðinu á næsta ári,“ sagði Rúnar Rúnarsson, formaður knattspyrnudeildar Tindastóls, við Feyki.

Murielle hefur raðað inn mörkum á Sauðárkróki undanfarin ár en í sumar skoraði hún 25 mörk í 17 leikjum. Samtals hefur hún skorað 77 mörk í 53 deildar og bikarleikjum með Tindastóli.

Jackie er miðjumaður sem var að ljúka sínu öðru tímabili með Tindastóli og Amber er markvörður sem var á sínu fyrsta ári með liðinu í ár.
Athugasemdir
banner
banner