mán 10. desember 2018 11:11
Magnús Már Einarsson
Luiz vill vera áfram hjá Chelsea
Luiz fagnar marki sínu gegn Manchester City um helgina.
Luiz fagnar marki sínu gegn Manchester City um helgina.
Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn David Luiz vonast til að ganga frá nýjum samningi við Chelsea.

Hinn 31 árs gamli Luiz verður samningslaus næsta sumar og hann er að ræða við Chelsea um nýjan samning.

Chelsea vill ekki semja lengur en til eins árs í einu við leikmenn sem eru eldri en þrítugt og það hefur valdið vandræðum í samningaviðræðum.

„Ég er að reyna að njóta mín eins og ég geri alla daga. Við munum gera það besta fyrir mig, fyrir Chelsea og fyrir alla," sagði Luiz.

„Við erum að ræða saman og sjáum hvað gerist í framtíðinni. Ég elska þetta félag og allir vita að ég vil vera áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner