Manchester United ætlar ekki að selja franska miðjumanninn Paul Pogba í janúar samkvæmt frétt ESPN í dag.
Pogba hefur verið á bekknum í síðustu tveimur leikjum Manchester United og samband hans og Jose Mourinho hefur verið mikið til umfjöllunar í vetur.
Pogba hefur verið á bekknum í síðustu tveimur leikjum Manchester United og samband hans og Jose Mourinho hefur verið mikið til umfjöllunar í vetur.
Pogba kom til Manchester United frá Juventus fyrir tveimur árum en hann hefur verið orðaður við sitt gamla félag á Ítalíu.
Samkvæmt frétt ESPN ætlar United hins vegar ekki að hlusta á tilboð í Pogba í janúar.
Mourinho hefur staðfest að Pogba verði í byrjunarliðinu gegn Valencia í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.
Athugasemdir