Cristiano Ronaldo, framherji Juventus, hefur skorað á Lionel Messi, stórstjörnu Barcelona, að koma í ítalska boltann.
Ronaldo hefur verið frábær með Ítalíumeisturunum frá því hann kom frá Real Madrid í sumar.
Ronaldo hefur verið frábær með Ítalíumeisturunum frá því hann kom frá Real Madrid í sumar.
„Ég væri til í að fá Messi til Ítalíu einn daginn, ég vona að hann taki áskoruninni," sagði Ronaldo við La Gazzetta Dello Sport.
„Ég hef spilað á Englandi, Spáni, Portúgal og Ítalíu. Hann er enn að spila á Spáni, kannski þarf hann á einhverju nýju að halda?"
„Ég lít á lífið sem áskoranir, ég vil gleðja fólk og ég vil að Messi komi til Ítalíu einn daginn. Ég virði hann. Hann er ótrúlegur leikmaður og mjög fínn náungi."
Athugasemdir