Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 10. desember 2018 14:17
Elvar Geir Magnússon
Spáir Liverpool og Tottenham áfram
John Cross.
John Cross.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
John Cross, íþróttastjóri Mirror, spáir því að Liverpool og Tottenham verði bæði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar.

Lokaumferðin í riðlum þeirra verður annað kvöld.

Liverpool þarf að vinna Napoli 1-0 eða með tveggja marka mun. Tottenham mætir Barcelona og má ekki fá færri stig úr þeim leik en Inter mun fá gegn PSV Eindhoven.

„Þið megið segja að ég sé brjálaður en ég spái því að bæði lið fari áfram," segir John Cross, einn þekktasti íþróttafréttamaður Englendinga.

„Liverpool getur farið illa með lið og andrúmsloftið á Anfield getur verið mjög sérstakt. Napoli hefur verið besta liðið í riðlinum en gæti fallið um síðustu hindrun því Liverpool veit vel hvað liðið þarf að gera."

„Þá tel ég að Spurs gætu laumað sér inn. Ég á erfitt með að sjá þá vinna á Nývangi en þeir gætu náð jafntefli og komist áfram ef Inter misstígur sig. Stundum spilast dramatíkin á lokadegi."
Athugasemdir
banner
banner