Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 10. desember 2018 17:15
Magnús Már Einarsson
Young vill nýjan samning hjá Manchester United
Young í baráttunni.
Young í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Ashley Young vonast til að fá nýjan samning hjá Manchester United fyrir næsta tímabil.

Hinn 34 ára gamli Young verður samningslaus næsta sumar en hann var á skotskónum í sigri á Fulham um helgina.

„Þetta veltur á félaginu," sagði hinn 33 ára gamli Young aðspurður út í samningamálin.

„Mér líður eins og ég sé í jafn góðu formi og þegar ég var 21 árs. Svo lengi sem fæturnir geta hjálpað mér að fara upp og niður völlinn þá myndi ég vilja vera hér áfram."

Young kom til Manchester United frá Aston Villa árið 2011 og hefur undanfarin ár verið meira í bakverðinum eftir að hafa áður spilað á kantinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner