Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður Vals, verður fyrirliði Íslands í vináttuleiknum gegn Svíum á Khalifa leikvanginum í Katar klukkan 16:45 í dag.
Birkir Már er langreyndasti leikmaðurinn í hópnum en hann mun í dag spila sinn 87. landsleik.
Fyrsti landsleikur Birkis var árið 2007 en hann færist nú nær hundraðasta landsleiknum.
Birkir er fjórði leikjahæsti leikmaðurinn í sögu Íslands en einungis Rúnar Kristinsson (104 leikir), Eiður Smári Guðjohnsen (89) og Hermann Hreiðarsson (88) eiga fleiri leiki að baki.
Hér að neðan má sjá byrjunarlið Íslands en þar má finna einn nýliða, Eið Aron Sigurbjörnsson liðsfélaga Birkis úr Val.
Athugasemdir