Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 11. janúar 2019 14:30
Arnar Helgi Magnússon
Kane: Erum í fínum séns varðandi titil
Mynd: Getty Images
Harry Kane, framherji Tottenham og enska landsliðsins segir að liðið sé í góðri stöðu varðandi það að vinna titil á tímabilinu.

Það eru orðin nokkur ár síðan að Tottenham vann titil síðast en það þarf að fara aftur til ársins 2008 þegar liðið vann deildarbikarinn á Englandi, League Cup.

„Markmið hvers fótboltamanns er að vinna titla og það er að sjálfsögðu mitt markmið líka."

„Það myndi verða toppurinn að ná að vinna eitthvað með þesusm strákum. Það er sami kjarni búinn að vera síðustu 3-4 ár."

Kane segir að liðið sé í góðri stöðu varðandi það að ná í titil á tímabilinu.

„Við erum í fínum séns. Við erum komnir í undanúrslit deildarbikarsins, leiðum þar eftir fyrri leikinn gegn Chelsea. Við erum inn í FA bikarnum og auðvitað deildinni. Það er þó ansi löng leið í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner