Kolbeinn Birgir Finnsson, leikmaður Brentford, spilaði sinn fyrsta landsleik í 2-2 jafntefli gegn Svíþjóð í Katar í dag. Kolbeinn var óvænt kallaður inn í hópinn á dögunum eftir að Kári Árnason meiddist.
„Þetta kom mjög skemmtilega á óvart. Ég átti ekki von á þessu og var í léttu sjokki bara," sagði Kolbeinn við Fótbolta.net en hann kom inn á hægri kantinn á 78. mínútu í kvöld.
„Þetta kom mjög skemmtilega á óvart. Ég átti ekki von á þessu og var í léttu sjokki bara," sagði Kolbeinn við Fótbolta.net en hann kom inn á hægri kantinn á 78. mínútu í kvöld.
„Þetta var ótrúlega gaman. Ég var mjög peppaður og fannst ég geta hlaupið endalaust. Þetta var geggjað."
Hinn 19 ára gamli Kolbeinn fór frá Groningen í Holland til Brentford síðastliðið sumar. Kolbeinn hefur verið að spila með U23 ára liði Brentford í vetur.
„Ég tel að England henti mér betur en Holland. Það er barátta í mér," sagði Kolbeinn.
„Ég vona að ég fái séns með aðalliðinu einhverntímann bráðum. Það hefur gengið vel með varaliðinu, ég hef skorað nokkur mörk og svona," sagði þessi efnilegi leikmaður að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir