Arnór Smárason verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu gegn því sænska í vináttuleik í Katar í dag.
Arnór á kærustu sem er frá Svíþjóð en hún heldur að sjálfsögðu með sínum manni og íslenska liðinu í dag.
Arnór á kærustu sem er frá Svíþjóð en hún heldur að sjálfsögðu með sínum manni og íslenska liðinu í dag.
„Þetta er extra stór leikur á heimilinu," sagði Arnór í viðtali við Fótbolta.net í vikunni.
„Hún heldur með Íslandi í leiknum, það kemur ekkert annað til greina. Annars myndum við hætta saman," bætti Arnór við léttur í bragði.
Leikur Íslands og Katar hefst klukkan 16:45 í dag og verður í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.
Ísland - Svíþjóð klukkan 16:45 í dag. Sænsk kærasta @arnorsmaRa heldur að sjálfsögðu með Íslandi! #fotboltinet pic.twitter.com/vytaWNaYVo
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) January 11, 2019
Athugasemdir