Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 11. janúar 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Benfica kaupir Kólumbíumann frá Fluminense
Benfica var að krækja í öflugan leikmann
Benfica var að krækja í öflugan leikmann
Mynd: Getty Images
Portúgalska félagið Benfica hefur fest kaup á Yony Gonzalez frá brasilíska félaginu Fluminense.

Gonzalez, sem er 25 ára gamall, skoraði 19 mörk í brasilísku deildinni á síðasta tímabili með Fluminense.

Hann á þrjá leiki að baki með U23 ára landsliði Kólumbíu en hann er nú mættir til Benfica.

Hann gerði fjögurra og hálfs árs samning við félagið.

Benfica er á toppnum í portúgölsku deildinni með 45 stig en liðið hefur unnið fimmtán leiki og aðeins tapað einum.
Athugasemdir
banner
banner