Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. janúar 2020 11:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Inter að bjóða Eriksen samning
Mynd: Getty Images
Snemma í þessum mánuði hófu Inter og Christian Eriksen viðræður sín á milli en samningur Eriksen við Tottenham rennur út í sumar.

Samkvæmt heimildum Sky Sports munu viðræðurnar halda áfram og mun umboðsmaður Eriksen ræða við menn hjá Inter um helgina.

Umboðsmaðurinn hitti menn frá Inter í gærkvöldi í Mílanó og fékk hann drög að samningstilboði í hendurnar frá ítalska félaginu. Viðræður halda áfram í dag.

Tottenham mætir Liverpool á heimavelli í stórleik helgarinnar klukkan 17:30. Allar líkur eru á því að Eriksen verði í hópnum hjá Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner