Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 11. janúar 2020 18:54
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: 20. deildarmark Immobile kom í sigri á Napoli
Ciro Immobile skoraði eina mark leiksins
Ciro Immobile skoraði eina mark leiksins
Mynd: Getty Images
Lazio 1 - 0 Napoli
1-0 Ciro Immobile ('82 )

Ítalska félagið Lazio heldur áfram að þjarma að toppliðum Juventus og Inter en liðið vann Napoli 1-0 í kvöld.

Ciro Immobile hefur verið magnaður á þessari leiktíð en hann skoraði sigurmarkið á 82. mínútu í kvöld.

Immobile er kominn með 20 mörk í 18 deildarleikjum og er markahæsti maður deildarinnar, sex mörkum á undan Romelu Lukaku sem er með 14 mörk.

Lazio er í 3. sæti deildarinnar með 42 stig, aðeins þremur stigum minna en Juventus og Inter.
Athugasemdir
banner
banner