Cagliari 0 - 2 Milan
0-1 Rafael Leao ('46 )
0-2 Zlatan Ibrahimovic ('64 )
0-1 Rafael Leao ('46 )
0-2 Zlatan Ibrahimovic ('64 )
AC Milan, með Zlatan Ibrahimovic í fyrsta sinn í byrjunarliðinu frá endurkomu sinni til félagsins, heimsótti í dag Cagliari í ítölsku Seríu A.
Rafael Leao kom AC Milan yfir snemma í seinni hálfleik og það var svo Zlatan sjálfur sem kom boltanum í netið með skoti úr teignum á 64. mínútu. Flott spil sem endaði með góðu skoti. Á 82. mínútu skoraði Zlatan annað mark en það var dæmt af vegna rangstöðu.
Þetta var fyrsta mark Zlatan í deildarleik hjá Milan frá því að hann gekk í raðir félagsins á ný. Þetta var jafnframt fyrsti deildarsigur Milan í rúman mánuð.
Leikurinn í dag var fyrsti leikur 19. umferðar í deildinni. Leiki umferðirinnar má sjá hér að neðan:
Ítalía: Sería A
17:00 Lazio - Napoli
19:45 Inter - Atalanta
Sunnudagur:
11:30 Udinese - Sassuolo
14:00 Fiorentina - Spal
14:00 Torino - Bologna
14:00 Sampdoria - Brescia
17:00 Verona - Genoa
19:45 Roma - Juventus
Mánudagur:
19:45 Parma - Lecce
Athugasemdir