Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. janúar 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Kjær á leið til AC Milan
Simon Kjær í leik með danska landsliðinu
Simon Kjær í leik með danska landsliðinu
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan er að landa danska varnarmanninum Simon Kjær frá Sevilla en ítalskir fjölmiðlar fullyrða þetta.

Kjær, sem er 30 ára gamall, er samningsbundinn Sevilla en fór til Atalanta á láni út þetta tímabil.

Hann hefur aðeins spilað sex leiki með Atalanta á leiktiðinni og er félagið tilbúið að slíta lánssamningnum svo Kjær komist til AC Milan.

Samkvæmt ítölskum miðlum fer Kjær á láni út tímabilið með möguleika á að kaupa hann.

Hann mun gangast undir læknisskoðun í dag og verða skiptin væntanlega staðfest um helgina eða á mánudag.
Athugasemdir
banner