Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. janúar 2020 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Lampard ætlar ekki að selja Pedro
Pedro
Pedro
Mynd: Getty Images
Spænski vængmaðurinn Pedro Rodriguez er ekki til sölu en þetta segir Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea.

Pedro er 32 ára gamall og verður samningslaus í sumar en hann hefur aðeins spilað ellefu leiki á þessu tímabili.

New York City FC og Inter Miami í MLS-deildinni hafa mikinn áhuga á að fá Pedro en Lampard ætlar ekki að selja hann.

„Hann er partur af mínum plönum. Þegar tímabilið byrjaði þá var hann í liðinu en svo meiddist hann fyrir leikinn gegn Norwich og ég þurfti að breyta til. Hann var frá í smá tíma og það er mikil samkeppni um stöður," sagði Lampard.

Athugasemdir
banner
banner
banner