Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. janúar 2020 16:25
Aksentije Milisic
Minamino: Gat ekki neitað tilboði frá besta liðinu á plánetunni
Minamino spilaði í FA Cup.
Minamino spilaði í FA Cup.
Mynd: Getty Images
Takumi Minamino, leikmaður Liverpool, segir að hann ákvað að ganga til liðs við Liverpool vegna þess að hann gat einfaldlega ekki hafnað besta liðinu á plánetunni.

Minamino gæti spilað sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar Liverpool heimsækir Tottenham kl.17:30.

„Ég fékk tilboð frá liði sem er það besta á plánetunni þessa stundina, það var mikilvægt fyrir mér. Þetta var tilboð sem ég gat ekki hafnað," sagði Minamino.

„Ég var hissa, en eftir að ég mætti þeim tvisvar sinnum í Meistaradeildinni og þegar ég talaði við Klopp, þá varð ég meir og meir spenntari yfir þessari áskorun. Sú staðreynd að ég skoraði á Anfield gaf mér enn meira sjálfstraust."

Minamino gæti verið einu kaup Liverpool í þessum glugga en Joel Matip og Fabinho eiga að snúa til baka í þessum mánuði eftir meiðsli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner