Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. janúar 2020 23:13
Brynjar Ingi Erluson
Reina staðfestir á Instagram að hann sé á leið til Villa
Mynd: Getty Images
Pepe Reina, markvörður AC Milan, staðfesti á Instagram að hann væri á leið frá félaginu.

Reina er á leið á láni frá Milan til Aston Villa út þetta tímabil en hann hefur aðeins spilað einn leik á tímabilinu með Milan.

Spænski markvörðurinn er 37 ára gamall og er með magnaða ferilskrá en hann ólst upp hjá Barcelona áður en hann fór til Villarreal þar sem hann gerði góða hluti.

Rafael Benitez keypti hann til Liverpool árið 2005. Hjá Liverpool náði hann að skapa sér nafn og var um tíma með bestu markvörðum heims.

Nú er hann á leið aftur í ensku úrvalsdeildina en hann mun gangast undir læknisskoðun hjá Villa á mánudaginn og skrifa í kjölfarið undir samning út þetta tímabil.

„Takk AC Milan. Sjáumst í júlí," skrifaði Reina á Instagram.
Athugasemdir
banner
banner
banner