Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 11. janúar 2020 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham leggur fram tilboð í Gedson Fernandes
Gedson Fernandes
Gedson Fernandes
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur hefur lagt fram tilboð í portúgalska miðjumanninn Gedson Fernandes en Sky Sports greinir frá þessu.

Benfica hefur þegar samþykkt lánstilboð til næstu átján mánaða frá West Ham í Fernandes en svo virðist sem áhuginn sé mikill á leikmanninum.

Samkvæmt Sky Sports er Tottenham nú komið í kapphlaupið um hann en félagið hefur lagt fram samskonar tilboð. Tottenham vill fá hann á láni í átján mánuði með möguleika á að kaupa hann.

Moussa Sissoko verður frá næstu mánuði vegna hnémeiðsla og sér Jose Mourinho fyrir sér að Fernandes leysi hann af hólmi.

Fernandes var á varamannabekknum er Benfica vann Aves 2-1 í portúgölsku deildinni í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner