Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. janúar 2020 10:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Umboðsmaður Fernandes eyddi Twitter reikningi sínum
Líkaði við færslu Ferdinand
Mynd: Getty Images
Manchester United er orðað við Bruno Fernandes, miðjumann Sporting Lisbon. Umboðsmaður hans eyddi Twitter-reikningi sínum í gær.

Heimildir enskra fjölmiðla segja frá því að umboðsmaðurin hafi líkað við færslu Rio Ferdinand og allt hafi farið í háa loft, litið var á það sem einhvers konar staðfestingu á að viðræður væru vel á veg komnar.

Umboðsmaðurinn eyddi reiknig sínum. Samkvæmt portúgölskum heimildum flugu Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, og Mike Phelan, aðstoðarmaður Solskjær, til Portúgal í vikunni og horfðu á Fernandes spila.

Miðjumaðurinn er talinn kosta United um 60 milljónir punda en hann er 25 ára gamall.



Athugasemdir
banner
banner
banner