lau 11. janúar 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Wilder: Fann til með Moyes
Chris Wilder
Chris Wilder
Mynd: Getty Images
Chris Wilder, knattspyrnustjóri Sheffield United, var ánægður með 1-0 sigur á West Ham United í gær en segist þó finna til með David Moyes.

Oli McBurnie skoraði sigurmark Sheffield United en undir lokin átti sér stað mikil dramatík. Robert Snodgrass jafnaði metin í uppbótartíma en markið var dæmt af þar sem Declan Rice handlék knöttinn í aðdragandanum.

„Ég finn til með David Moyes og leikmönnunum. Það sama hefur gerst fyrir okkur nokkrum sinnum. Ef við hefðum verið í sárum ef við hefðum gert jafntefli," sagði Wilder.

„Um leið og þeir skoruðu þá var enginn að fylgjast með þessu en ég fann til með þeim."

Wilder skrifaði undir fjögurra og hálfs árs framlengingu við félagið í gær.

„Ég legg hart að mér og félagið vildi framlengja. Það vita allir hvað mér finnst um þetta knattspyrnufélag. Það er frábær andi hér og að komast upp í fimmta sætið á þessum hluta tímabilsins er magnað afrek," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner