mán 11. janúar 2021 08:14
Magnús Már Einarsson
Alli aftur kominn í áætlanir Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að Dele Alli sé kominn aftur í áætlanir sínar.

Alli hefur spilað lítið á tímabilinu og oft verið utan leikmannahóps í leikjum Tottenham.

Alli byrjaði í 5-0 sigrinum gegn Marine í enska bikarnum í gær og gæti spilað gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á miðvikudaginn.

„Hann var hér í dag (í gær) og auðvitað var þetta ekki leikur til að dæma um gæði. Fagmennskan og hugarfarið er hins vegar eitthvað sem ég er mjög ánægður með," sagði Mourinho.

„Ég verð ekki hissa ef Dele spilar með okkur næsta miðvikudag."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner