Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. janúar 2022 18:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Southampton og Brentford: Canos snýr aftur
Mohammed Salisu
Mohammed Salisu
Mynd: Getty Images
Það er einn leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Southampton og Brentford mætast kl 19:45. Byrjunarlið liðanna eru komin í hús.

Mohammed Salisu snýr aftur í byrjunarlið Southamptone en hann var í banni í bikarsigri liðsins gegn Swansea. Hann fékk að líta rauða spjaldið í jafntefli gegn Tottenham í síðustu umferð deildarinnar.

Í liði Brentford eru Sergi Canos og Mathias Jensen klárir eftir að hafa verið frá vegna meiðsla að undanförnu. Canos er í byrjunarliðinu en Jensen er á bekknum.

Southampton: Forster, Tella, Bednarek, Lyanco, Salisu, Perraud, Ward-Prowse, Romeu, Diallo, Redmond, Broja.

Brentford: Fernandez, Ajer, Jansson, Pinnock, Roerslev, Baptiste, Norgaard, Janelt, Canos, Mbeumo, Toney.
Athugasemdir
banner
banner
banner