Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 11. janúar 2023 11:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Emery dáir Guendouzi og vill aftur fá hann í sitt lið
Matteo Guendouzi.
Matteo Guendouzi.
Mynd: Getty Images
Franski landsliðsmaðurinn Matteo Guendouzi gæti verið á leið aftur í ensku úrvalsdeildina.

Foot Mercato í Frakklandi segir frá því í dag að Aston Villa sé að undirbúa tilboð í leikmanninn.

Unai Emery, stjóri Aston Villa, þekkir leikmanninn vel eftir að hafa fengið hann til Arsenal á sínum tíma og unnið með honum þar. Guendouzi gekk í raðir Arsenal árið 2018 en náði sér ekki á strik þar.

Guendouzi gekk í raðir Marseille síðasta sumar eftir að hafa verið á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.

Samkvæmt frétt Foot Mercato þá er Emery gríðarlegur aðdáandi leikmannsins og Guendouzi kann sömuleiðis mjög vel við spænska stjórann.

Guendouzi er samningsbundinn Marseille og er sagður metinn á 30 milljónir evra. Aston Villa þarf því heldur betur að rífa fram veskið til að landa honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner