Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. janúar 2023 23:33
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Þetta var slæmt kvöld
Mynd: EPA
„Betra liðið vann,“ sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, eftir 2-0 tapið fyrir Southampton í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld.

Manchester City er úr leik í deildabikarnum. Southampton átti sigurinn fyllilega verðskuldað en Englandsmeistararnir náðu ekki að skapa sér neitt af viti á meðan Southampton spilaði hápressu sem svínvirkaði.

Guardiola var ekkert að afsaka sig og viðurkenndi það fúslega að lið hans hafi átt slæmt kvöld.

„Við spiluðum ekki vel og það var þannig alveg frá fyrstu mínútu. Það eru margir leikir sem þú getur byrjað illa og komist yifir þann kafla, en við gerðum það ekki.“

„Þegar þú ert ekki undirbúinn að spila svona leik þá ertu alltaf einum meter á eftir og skorar ekki mark. Þegar þú er undirbúinn þá skorar þú.“

„Þetta var slæmt kvöld. Andstæðingurinn var betri og við verðum að óska þeim til hamingju. Maður þarf að verðskulda sigurinn og við verðskulduðum það ekki í kvöld,“
sagði Guardiola í lokin.
Athugasemdir
banner
banner