Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. febrúar 2019 19:10
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Wolves og Newcastle: Almiron á bekknum
Mynd: Getty Images
Wolves tekur á móti Newcastle í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið kynnt.

Heimamenn eru búnir að vinna þrjá leiki í röð í deildinni og á blússandi siglingu. Sigur í kvöld yrði í fyrsta sinn síðan 1972 sem Úlfarnir vinna fjóra leiki í röð í efstu deild.

Það er ekkert sem kemur á óvart í byrjunarliði Úlfanna en Miguel Almiron, sem var keyptur á metfé, byrjar á bekknum hjá Newcastle ásamt Kenedy.

Heimamenn eru í sjöunda sæti og geta minnkað bilið á milli sín og Chelsea niður í níu stig með sigri. Gestirnir þurfa aftur á móti sigur í fallbaráttunni.

Wolves: Patricio, Doherty, Bennett, Boly, Coady, Jonny, Neves, Moutinho, Dendoncker, Jimenez, Jota
Varamenn: Ruddy, Saiss, Vinagre, Gibbs-White, Cavaleiro, Costa, Traore.

Newcastle: Dubravka, Yedlin, Lejeune, Schar, Lascelles, Ritchie, Hayden, Longstaff, Atsu, Perez, Rondon
Varamenn: Woodman, Manquillo, Fernandez, Diame, Kenedy, Almiron, Joselu.
Athugasemdir
banner