Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. febrúar 2019 18:29
Ívan Guðjón Baldursson
Cavani missir af leiknum á morgun
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani sóknarmaður PSG verður ekki með liðinu í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Thomas Tuchel þjálfari PSG staðfesti þetta rétt í þessu.

PSG heimsækir þá Manchester United og verður einnig án brasilísku stórstjörnunnar Neymar sem er meiddur.

Cavani hefur verið einn af bestu mönnum PSG frá komu sinni til félagsins og er búinn að skora 80 mörk í síðustu 86 deildarleikjum sínum í franska boltanum.

Hans verður sárt saknað enda hefur hann skorað 17 mörk í síðustu 24 leikjum sínum í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner