Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. febrúar 2019 22:53
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Vængir Júpíters í úrslit þrátt fyrir tap
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Augnablik 2 - 1 Vængir Júpíters
0-1 Jónas Breki Svavarsson
1-1 Gabriel Delgado Costa
2-1 Birkir Örn Sigurðsson

Augnablik lagði Vængi Júpíters að velli í C-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld með tveimur mörkum gegn einu.

Jónas Breki Svavarsson kom Vængjunum yfir en Gabriel Delgado Costa og Birkir Örn Sigurðsson sneru stöðunni við fyrir Augnablik.

Þetta var fyrsti sigur Augnablik og lýkur liðið riðlakeppni með þrjú stig eftir þrjár umferðir. Augnablik mætir Álftanesi í úrslitaleik um 5. sæti C-deildar.

Þetta var fyrsta tap Vængjanna sem vinna riðilinn þrátt fyrir og mæta KV í úrslitaleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner