Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. febrúar 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Vængirnir mega tapa með fjórum
Mynd: Vængir Júpiters - Twitter
Augnablik og Vængir Júpíters mætast í Fagralundi í eina leik dagsins í íslenska boltanum.

Liðin eigast við í C-deild Fótbolta.net mótsins en Vængirnir eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir á meðan Augnablik er stigalaust.

Vængirnir eru svo gott sem búnir að tryggja sér toppsætið og þurfa fimm marka tap í kvöld til að komast ekki í úrslitaleik C-deildar, sem verður gegn KV.

Bæði lið munu leika í 3. deild Íslandsmótsins næsta sumar eftir mikinn uppgang undanfarin ár.

Fótbolta.net mótið - C-deild, riðill 1:
19:20 Augnablik - Vængir Júpíters (Fagrilundur)
Athugasemdir
banner
banner