Óvænt uppákoma átti sér stað í 3-0 sigri Juventus á Sassuolo í Serie A í gær.
Áhorfandi hljóp þá ber að ofan inn á völlinn og í átt að Cristiano Ronaldo leikmanni Juventus.
Áhorfandi hljóp þá ber að ofan inn á völlinn og í átt að Cristiano Ronaldo leikmanni Juventus.
Áhorfandinn lék fagn Ronaldo eftir og hljóp síðan í fangið á honum þar sem hann sagði vel valin orð.
Öryggisverðir náðu síðan að mæta á svæðið og leiða áhorfandann af velli.
Ronaldo var sjálfur á skotskónum í gær en Juventus er með ellefu stiga forskot á toppnum í Serie A og fátt virðist geta stöðvað liðið.
Athugasemdir