þri 11. febrúar 2020 18:45
Aksentije Milisic
Ajax fylgist með gangi mála hjá Vertonghen
Mynd: Getty Images
Erik ten Hag, þjálfari Ajax, hefur sagt frá því að hann hefur áhuga á að fá Jan Vertonghen, varnarmann Tottenham, frítt næsta sumar.

Samningur Vertonghen hjá Lundúnarliðinu rennur út eftir tímabilið og er framtíð hans hjá liðinu óljós.

Vertonghen spilaði með Ajax á árunum 2006 til 2012 og hefur Erik sagt að liðið fylgist grannt með gangi mála hjá honum.

„Jan á sér sögu hjá okkur. Að sjálfsögðu erum við að fylgjast með gangi mála hjá honum," sagði ten Hag.

„Aldurinn skiptir engu máli hjá okkur. Ef leikmaður er nógu góður, þá skiptir það engu máli."

Vertonghen verður 33 ára í apríl en hann á að baki 155 leiki fyrir Ajax.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner