Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 11. mars 2020 20:30
Aksentije Milisic
„Bruno hefur gert Fred, Matic og Martial að betri leikmönnum"
Bruno og Martial fagna saman.
Bruno og Martial fagna saman.
Mynd: Getty Images
Owen Hargreaves, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir að Bruno Fernandes, sem kom til United í janúar síðastliðnum frá Sporting Lissabon, hafi bætt liðið mikið. Þá nefnir hann sérstaklega þrjá leikmenn sem Bruno hefur gert að betri leikmönnum.

Bruno hefur byrjað frábærlega hjá Man Utd en hann var valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni fyrir febrúar mánuð. Þá hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp önnur þrjú í sjö leikjum fyrir United.

„Ég held að þú getur bara litið á aðra leikmenn í kringum í hann. Ég veit að Fred er búinn að eiga gott tímabil en ég held að Fred líði betur þegar hann hefur leikmann eins og Bruno með sér, sem er sífellt að bjóða sig og hugsar fram á við," sagði Hargreaves í samtali við staðarblaðið í Manchester.

„Við sjáum hvernig hann og Martial eru að ná saman. Sambandið sem þeir eru með sást bersýnilega í markinu gegn Man City. Ég held að það var ekki æft, þeir eru bara með þessa tengingu. Góðir leikmenn elska að spila saman."

„Matic er að spila vel með honum, Fred líka og þá hafa Bruno og Martial alvöru tengingu. Þessir þrír hafa allir bætt spilamennsku sína síðan Bruno kom," sagði Hargreaves að lokum.

Manchester United mætir LASK frá Austurríki á morgun á útivelli í Evrópudeildinni. Leikurinn fer fram fyrir luktum dyrum.
Athugasemdir
banner
banner