Daniele Rugani, miðvörður Juventus, er fyrsti leikmaðurinn í Serie A til að vera greindur með kóróna veiruna.
Juventus greindi frá þessu í kvöld og því eru líkur á því að aðrir leikmenn eða starfsmenn félagsins séu einnig með veiruna.
Ítalski boltinn er kominn í pásu vegna veirunnar og líklegt að aðrar keppnir víðsvegar um Evrópu verði einnig stöðvaðar.
Rugani er 25 ára gamall og hefur verið hjá Juventus síðustu sjö ár. Hann hefur verið eftirsóttur af félögum á borð við Roma, Milan, Arsenal og Wolves að undanförnu.
Athugasemdir