Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 11. mars 2020 09:29
Magnús Már Einarsson
Drinkwater sagður hafa skallað liðsfélaga
Mynd: Getty Images
Aston Villa er að íhuga að rifta lánssamningi við miðjumanninn Danny Drinkwater eftir að hann skallaði liðsfélaga sinn Jota á æfingu í gær. Daily Mail segir frá þessu.

Drinkwater kom til Aston Villa á láni frá Chelsea í janúar en hefur einungis leikið fjóra leiki og átt erfitt uppdráttar.

Aston Villa ætlar að sekta Drinkwater fyrir atvikið í gær og félagið gæti skilað honum aftur til Chelsea.

Tímabilið í heild hefur verið mjög erfitt hjá Drinkwater en hann var á láni hjá Burnley fyrir áramót. Þar komst hann í fréttirnar fyrir að verða fyrir meiðslum í slagsmálum á djamminu.

Drinkwater varð enskur meistari með Leicester árið 2016 en hann fór ári síðar til Chelsea. Þar hefur hann ekki náð að festa sig í sessi.
Athugasemdir
banner