Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. mars 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gerði meira en 40 skýrslur um Davies fyrir Man Utd
Alphonso Davies er að slá í gegn hjá Bayern.
Alphonso Davies er að slá í gegn hjá Bayern.
Mynd: Getty Images
Njósnarinn Jorge Alvial segist hafa reynt að ná athygli Manchester United út af Alphonso Davies, núverandi leikmanni Bayern München. Hann hafi gert meira en 40 skýrslur um Davies, en lítið hafi verið gert í því að hálfu félagsins.

Alvial tók eftir hæfileikum Davies er hann var 14 ára og keppti á unglingamóti í Dallas í Bandaríkjunum.

„Hann var fyrsti leikmaðurinn sem ég mælti með eftir að United réði mig," sagði Alvial við Manchester Evening News.

„Ég sá hann fyrsta spila í Dallas og hann var mjög góður leikmaður. Hann var aðeins 14 ára og fór aftur til Vancouver. Síðar meir var ég að horfa á myndbönd með syni mínum og þá sá ég Alphonso og ákvað að hringja."

„Ég hef mjög sterka skoðun á honum. Hann er sterkur líkamlega og gáfaður. Ég hef mjög sterka skoðun á honum, jafnvel sterkari skoðun en ég hafði á 14 ára Christian Pulisic þegar ég mælti með honum fyrir Chelsea."

„Þegar ég sá hvað hann gerði án þess að fá alvöru þjálfun þá vissi ég að hann myndi fara til Manchester United eða eitthvað annað, og taka strax stökk."

Alvial ræddi nokkrum sinnum við Davies og segist strax hafa tekið eftir því hversu gáfaður hann var. „Hann vildi læra og hann var einnig hnyttinn. Hann var ekki þessi týpíski strákur sem vildi verða stórstjarna, eignast pening og kaupa bíl," segir Alvial.

„Í tvö þá talaði ég við Manchester United um hann. Ég skrifaði meira en 40 skýrslur um hann þegar ég var hjá United. Ég hafði engar efasemdir," segir njósnarinn.

Davies er 19 ára gamall. Hann var keyptur til Bayern frá Vancouver Whitecaps í Kanada í fyrra. Á þessu tímabili hefur hann leikið 29 leiki fyrir þýska stórliðið og skorað eitt mark.
Athugasemdir
banner