Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. mars 2020 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gerrard vill klára skosku deildina með eða án áhorfenda
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, stjóri Rangers, er ekki á þeirri skoðun að það eigi að hætta leik í skosku deildinni vegna kórónaveirunnar.

Í flestum löndum Evrópu er verið að skoða þann möguleika að fresta leikjum eða leika þá fyrir luktum dyrum, án áhorfenda.

Gerrard vill klára mótið í Skotlandi jafnvel þó að ákvörðun verði tekin um að banna áhorfendur frá völlum.

Celtic er í efsta sæti með þrettán stiga forskot á Rangers sem hefur aftur 21 stigs forskot á þriðja sætið.

Þrjár umferðir eru eftir í Skotlandi og svo er deildin tvískipt í fallumspil og umspil um titilinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner