Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 11. mars 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
KSÍ bíður svara frá UEFA með milliriðil U19
U19 ára landslið karla á æfingu.
U19 ára landslið karla á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ bíður svara frá UEFA hvað verður gert með milliriðil hjá U19 ára landsliði karla.

Riðillinn á að fara fram á Norður-Ítalíu í lok mánaðarins en þar keppa Ísland, Ítalía, Noregur og Slóvenía um laust sæti í lokakeppninni í sumar.

Kórónaveiran hefur smitast út um allt á Ítalíu og íþróttaviburðum hefur verið slegið á frest þar til í apríl af þeim sökum.

KSÍ bíður nú eftir að heyra frá UEFA hvort að milliriðillinn fari fram í öðru landi eða hvort hann verði áfram á Ítalíu á nýjum leiktíma.

UEFA mun funda í dag um landsliðskeppnir yngri landsliða og KSÍ reiknar með svari í kjölfarið.
Athugasemdir
banner
banner
banner