Tottenham og Valencia voru slegin úr Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi eftir tapleiki gegn RB Leipzig og Atalanta.
Marcel Sabitzer skoraði tvennu er Leipzig vann auðveldan 3-0 sigur á Tottenham.
Leipzig vann einnig fyrri leikinn í London. Samtals unnu Þjóðverjarnir viðureignina 4-0.
Josip Ilicic skoraði fernu í 3-4 sigri Atalanta í Valencia. Spútnik lið tímabilsins frá Ítalíu vann öruggan sigur á heimavelli þar sem Ilicic skoraði eitt.
Atalanta vann samtals 8-4 og verður áhugavert að sjá hvernig liðinu gengur í 8-liða úrslitum, sem eru í mikilli hættu vegna kóróna veirunnar.
Hér fyrir neðan má sjá öll mörk gærkvöldsins. Í kvöld eiga Liverpool og PSG heimaleiki gegn Atletico Madrid og Borussia Dortmund.
Athugasemdir